Í bókinni kynnast nemendur uppruna íslenskunnar og eflast í framsögn, tjáningu, ritun, hlustun og lestri. Bókinni er skipt niður í sjö meginkafla sem fjalla um tungumálið, námstækni, lestur, leiðbeiningar, fræðitexta, ljóð og fjölmiðla. Í öllum köflunum eru verkefni sem reyna á ritun, framsögn/tjáningu og lesskilning.
Hlutverk bókarinnar er að hjálpa nemendum að auka færni sína til að tjá sig bæði munnlega og skriflega. Nemendur læra um netspor, fræðast um geiminn, skoða myndasögur, lesa ljóð og spila á spil. Þeir þjálfast í framsögn, tjáningu og hlustun auk þess að eflast í lestri og ritun.
Í bókinni eru leiðbeiningar settar fram á myndrænan og einfaldan hátt og auðvelt er fyrir nemendur að fylgja leiðbeiningum stig af stigi þar sem m.a er farið yfir orðanotkun, efnisröðun, mál og stíl.
Þetta er fyrsta bókin af þremur í lesskilningi fyrir miðstig. Nemendur lesa fjölbreytta texta og vinna verkefni í tengslum við efnið. Hver opna er sjálfstæð og hægt að velja þær eftir áhuga nemenda og áherslum kennara.
Annar Smellur er kennslubók sem þjálfar lesskilning hjá nemendum á miðstigi. Í bókinni er að finna mismunandi texta og verkefnum til þjálfunar. Meginefni bókarinnar er um hrafna en víða er leitað fanga eftir textum.
Þriðji Smellur er kennslubók sem þjálfar lesskilning hjá nemendum á miðstigi. Í bókinni er að finna mismunandi texta og verkefni til þjálfunar. Meginþema bókarinnar er um unglinginn en víða er leitað fanga eftir textum.
Bókmenntaefni, lestextar og ljóð úr ýmsum áttum, sem þjálfa lesskilning, framsögn, rökræður, samvinnu, ritun, sköpun og tjáningu.
Bókmenntaefni, lestextar og ljóð úr ýmsum áttum, sem þjálfa lesskilning, framsögn, rökræður, samvinnu, ritun, sköpun og tjáningu.
Bókmenntaefni, lestextar og ljóð úr ýmsum áttum, sem þjálfa lesskilning, framsögn, rökræður, samvinnu, ritun, sköpun og tjáningu.
Lestrarbækur sem taka mið af áhugamálum nemenda. Aftast í bókunum eru orðskýringar og fjölbreytt verkefni sem tengjast efni bókanna.
Saga grísku guðanna er sett fram í skemmtilegri endursögn Illuga Jökulssonar á lipru máli sem henta breiðum hópi lesenda.
Í Hómerskviðum er sagt frá ferðum Ódysseifs á leið heim úr 10 ára stríði við íbúa borgarinnar Tróju. Hér er sagan endursögð á lipru máli sem hentar breiðum hópi lesenda.
Í bókinni eru smásögur og verkefni með hverri sögu. Sögurnar segja m.a. frá mismunandi heimum, farið í heimsókn til álfa, krakkar flakka á milli ólíkra heima og gæludýrin í hverfinu funda stíft þegar nýtt dýr flytur á þúfuna þeirra.
Í þessari bók eru 44 þjóðsögur og ævintýri sem skiptast í 8 flokka: Álfar og huldufólk, draugar, galdrar, kímni- og ýkjusögur, tröll, helgisögur, úr sjó og vötnum og útilegumenn.
Öll höfum við frá einhverju að segja. Listin er að gera það þannig að aðrir hlusti og lesi af áhuga. Ritunarbókin er full af dæmum um hvernig þú getur fundið athyglisverðan efnivið í frásögn þína, skrifað svo að textinn grípi lesandann, tillögur um hvernig þú byggir upp langar frásagnir og skemmtilega ritunarleiki.
Í bókinni eru leiðbeiningar settar fram á myndrænan og einfaldan hátt og auðvelt er fyrir nemendur að fylgja leiðbeiningum stig af stigi þar sem m.a er farið yfir orðanotkun, efnisröðun, mál og stíl.
Í bókinni er fjallað um helstu reglur og hugtök sem nemendur þurfa að kunna skil á í stafsetningu og þau útskýrð með dæmum. Bókin er aðgengileg og útskýrir flókna hluti á einfaldan hátt.
Málsmiðjan er gagnvirkur vefur fyrir nemendur sem vilja þjálfa málfræði og stafsetningu.
Hér er að finna verkefni tengt persónulýsingum.
Varúðarbækurnar tilheyra nýjum lestrarflokki fyrir miðstig. Sögurnar í þessum flokki eru skrifaðar í léttum stíl og með það í huga að flestir ættu að ráða við textann. Bækurnar henta einkum þeim nemendum sem hafa átt í örðugleikum með lestur lengri texta.
Hægt er að nýta bækurnar á ýmsan máta t.d. til samlestur, yndislestur og einstaklingsvinnu.
Í Hljóðleikhúsinu, Búum til sögu, Hlustum á sögu þjálfast nemendur í því að kanna hljóðheiminn, rannsaka, flokka, velja og hafa stjórn á hljóðum frá mismunandi hljóðgjöfum. Í bókinni eru fjórar sögur ásamt kennsluverkefnum. Kennsluleiðbeiningar með fimm þjóðsögum sem eru í bókinni. Einnig má nýta bókina í tónlist.
Námsefnið inniheldur 25 hugleiðingar og spakmæli sem sett eru upp í gamla sjónprófsforminu sem allir krakkar og fullorðnir þekkja.
Sjónprófin má nýta á ýmsan hátt s.s. til að æfa sig í lestri, lesskilningi eða í almennri skynjun.
Með því að takast á við hvert og eitt sjónpróf eykur þú færni þína í lestri við að raða saman hugsun og skilningi. Sjónprófin geta skapað skemmtilegar vangaveltur um lífið og tilveruna. Allir ættu að geta fundið eitthvert spakmæli sem gott veganesti.
Vinna má með sjónprófin á margvíslegan hátt í tengslum við íslensku, listgreinar og samfélagsgreinar (lífsleikni) og eru tillögur að kennsluhugmyndum aftarlega í bókinni.