Hún er einkum ætluð nemendum á aldrinum 10 til 15 ára. Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra sá um þýðinguna yfir á íslenskt táknmál. Táknari er Elsa G. Björnsdóttir.
Markmiðið með bókinni er m.a. að lesendur kannist við nokkur fyrirbæri Íslandssögunnar sem oftast ber á góma opinberlega og manna á milli og skilji að mannlíf fyrri tíma gat verið gagnólíkt mannlífi samtímans. Texti bókarinnar er stuttur og á léttu máli. Myndefni er ríkulegt, bæði teikningar og ljósmyndir og valið með það í huga að hægt sé að lesa úr þeim það sem textinn fjallar um. Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra sá um þýðinguna yfir á íslenskt táknmál. Táknari er Árný Guðmundsdóttir.
Í Snorra sögu er leitast við að bregða upp mynd af ævi Snorra Sturlusonar. Með því að færa sögulegar heimildir og tilgátur í búning skáldsögunnar er nemendum á miðstigi grunnskólans opnuð sýn inn í uppvaxtarár og ævintýralegt líf þessa miðaldarhöfðingja og samtímamanna hans. Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra sá um þýðinguna yfir á íslenskt táknmál. Táknari er Kolbrún Völkudóttir.