Dagbók – Heimanám
Dagbók þar sem finna má hlekki á vefi með námsefni, hreyfingu dagsins og hlekki á lærdómsríka, skemmtilega og áhugaverða vefi fyrir börn á grunnskólaaldri.
Háteigsskóli útbjó þessa skemmtilegu dagbók fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál fyrir vikuna 30. mars – 3. apríl. Höfundur dagbókarinnar er Ragnheiður Valgerður Sigtryggsdóttir en hún kennir íslensku sem 2. mál í háteigsskóla.
Íslenska – Tölum saman
Kennslubók fyrir byrjendur í íslensku.
Námsefni þetta hentar vel nemendum í efri deildum grunnskóla og framhaldsskóla en jafnframt fullorðnu fólki sem er að stíga sín fyrstu skref í íslenskunámi. Efnið er unnið í samræmi við færnimarkmið námskrár mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Aðaláherslan er hér á talað mál og tengist efni bókarinnar aðallega daglegu lífi.
Höfundar eru tungumálakennarar og hafa starfað við Fjölbrautaskólann við Ármúla í fjölda ára.
Verkefni sem þjálfa orðaforða
Hér má finna verkefni í íslensku sem öðru tungumáli til að þjálfa grunnorðaforða. Mjög gott stuðningsefni fyrir alla aldurshópa sem eru á byrjendastigi og þurfa skemmtilegar æfingar til að festa orðaforðann í minni.
Höfundur er Sigrún Aðalheiður Gunnarsdóttir, kennari í íslenskuveri Vogaskóla.
Icelandic online
Icelandic Online fyrir börn er gagnvirkt námsefni með leikjaívafi í íslensku sem öðru máli fyrir börn á leikskólaaldri og í fyrstu bekkjum grunnskóla. Á kennsluvefnum eru sjö námskeið í mismunandi þyngdarstigum. Markhópurinn er 5-7 ára börn sem eiga erlent mál að móðurmáli og íslensk börn sem alist hafa upp í öðru málumhverfi og eru að byrja að lesa. Efnið mun einnig nýtast sem ítarefni við móðurmálsnám en í því er sérstök áhersla lögð á skólamál og mál námsbóka. Námskeiðið tekur mið af aðalnámskrá leik- og grunnskóla og nýtir sér vefnámskeiðaumhverfi Icelandic Online sem hentar bæði tölvum og snjalltækjum. Kennsluvefurinn er gjaldfrjáls og öllum opinn. Verkefnið hlaut styrki frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Barnavinafélaginu Sumargjöf, Styrktarsjóði Áslaugar Hafliðadóttur, þróunarsjóði innflytjendamála og þróunarsjóði námsgagna.
Þetta reddast
Námsefnið er hugsað fyrir kennara sem kenna íslensku sem annað mál á öllum stigum grunnskólans. Efnið er 10 hefti sem hvert um sig er 16 verkefnasíður, og fjallar um afmarkað viðfangsefni á fjölbreyttan máta. Með því fylgja kennsluleiðbeiningar, fánaveifur, orðabankar og margvísleg fylgiskjöl. Efnið er í vinnslu.