DigiWorld
Digiworld er miðlalæsistölvuleikur sem var hannaður í Bretlandi af samtökunum ParentZone til að hjálpa börnum að skilja hvernig hægt er að nota netið á öruggan hátt og takast á við þær áskoranir sem geta orðið á vegi þeirra. Markmið ParentZone aðstoðar fjölskyldur að öðlast heilbrigðari og öruggari nálgun á stafræna hluta fjölskyldulífsins. Leikurinn tekur mið af aldri leikmanns og sýnir viðeigandi spurningar fyrir hvert aldursbil. Spurningarnar eru settar fram á skemmtilegan hátt með valkostum og útskýringum í léttum tóni. Ef leikmaður svarar nokkrum spurningum í röð rangt þá er honum boðið að fara aftur í gegnum sambærilegar spurningar. Í lokin fær leikmaður rafrænt viðurkenningarskjal fyrir að hafa klárað leikinn en það tekur um 20-40 mínútur að vinna sig í gegnum leikinn (mismunandi eftir aldri og skilningi). Leikurinn safnar engum persónugögnum og það eina sem leikmaður setur inn er notendanafn að eigin vali og aldur.
Breska sendiráðið í Reykjavík hefur unnið að þýðingu leiksins yfir á íslensku og er nú í samstarfi við Reykjavíkurborg að prófa að nota leikinn sem heimanám fyrir nemendur í 3. og 4. bekk sem þeir vinna í eitt skipti með foreldrum/forráðamönnum sínum. Vonast er til að verkefnið geti einnig farið í skóla fleiri sveitarfélaga landsins von bráðar.
Við vonum að leikurinn hjálpi bæði börnum og fullorðnum að nota netið á öruggari hátt og stuðli jafnframt að samtali innan heimilisins um miðlalæsi og netöryggi.
Kennsluleiðbeiningar með leiknum eru væntanlegar.
Phython fyrir byrjendur – inngangur að forritun
Kennsluefni eftir Valborgu Sturludóttur
Þessi bók fjallar um þau undirstöðuatriði sem þarf að kynna til að ná tökum á forritun í Python. Höfundi finnst mikilvægt að kenna námsefnið með íslenskum hugtökum þar sem ætlunin er að nota hana í kennslu í íslenskum framhaldsskólum. Ef nemendur ætla að leggja fyrir sig tölvunarfræði í framhaldsnámi er nauðsynlegt að búa yfir ríkulegu íðorðasafni, sérstaklega ef nemandi hyggst framfleyta fræðunum. Hugtök eru þó líka sett fram á ensku ef lesandi vill fletta upp ítarefni sem meira er til af á netinu á ensku en íslensku.
Við keyrslu á kóða þarf einnig að hafa í huga að tölvan gerir nákvæmlega það sem við segjum henni að gera og ekkert annað. Og þá komum við niður á stórt vandamál, að tölvur eru mjög bókstaflegar og vitlausar. Þær skortir allt vit, þær reyna ekki að hafa vit fyrir okkur. Þær gera nákvæmlega það sem við biðjum um. Nákvæmlega eins og við biðjum um það.
Bæði getur bókin verið ítarefni til að styðja við annað námsefni og verkefnabók fyrir nemendur að tileinka sér forritun upp á eigin spýtur. Forritun er skemmtileg og getur hjálpað okkur við að leysa hversdagsleg verkefni.
Kennarar sem vilja nýta sér bókina geta fengið Jupyter vinnubækur hjá höfundi til að styðjast við.
Efnið er gefið út undir Creative Commons leyfi 3.0, þér er heimilt að afrita, nota, og vinna áfram með efnið ef þú vísar í upprunann, þú mátt ekki hagnast af kennsluefni þessu.
Upplýsingatækni | Oddeyrarskóli og Þelamerkurskóli
Þessari síðu er ætlað að vera handraði fyrir kennara og nemendur sem vilja nýta sér upplýsingatækni í skólastarfi. Markmiðið er að safna hugmyndum að verkfærum og gera þau aðgengileg svo þau nýtist í daglegu starfi.
Tæknin breytist frá degi til dags og listinn er þess vegna engan veginn tæmandi. Það er okkar ósk að verkfærin nýtist þeim sem vilja auka hlut rafrænna kennsluhátta í sínu starfi.
Spjaldtölvur í grunnskólum Kópavogs
Hér eru nokkrar hugmyndir og kveikjur hvernig hægt er að vinna með stafræna borgaravitund með nemendum. Athugið að þetta eru hugmyndir en best er að hver kennari útfæri þær þannig að þær henti honum sjálfum og nemendum. Einnig er hægt að útfæra þær sem heimavinnu nemenda og/eða foreldra. Í öllum köflunum er vísað í fréttir eða annað efni sem tengist daglegu lífi okkar allra.
Á vefnum Námsefni í stafrænni borgaravitund má líka finna mikið af efni sem er skipt niður eftir árgöngum.
SAFT – Fræðsluefni
Hér er hægt að finna fróðleik um netöryggi og samskipti á netinu. Meðal efnis eru bæklingar, kennsluefni og – leiðbeiningar, veggspjöld, hlaðvarpsþættir, skýrslur og rannsóknir.